Kraftur í kofabyggð
Kofasmiðir eru þessa dagana önnum kafnir við að reisa sér bústaði við lögreglustöðina í Keflavík.Kofasmiðir eru þessa dagana önnum kafnir við að reisa sér bústaði við lögreglustöðina í Keflavík. Silja Dögg Gunnarsdóttir heimsótti kofabyggðina þegar byggingar var að hefjast og myndaði húsbyggjendur með hamra á lofti, en þeir voru í óða önn við að naglhreinsa byggingarefnið og ljúka við teikningar af mannvirkjunum. Að þessu sinni eru um 70 krakkar í hópnum á aldrinum 7 til 12 ára. Ragnhildur L. Guðmundsdóttir og Anna Gústafsdóttir eru umsjónarmenn kofabyggðarinnar en þetta er fyrsta starfssumarið þeirra.„Mér líst bara vel á starfið. Ég byrjaði reyndar á að eyða miklum tíma niður á heilsugæslustöð því ein stúlkan datt og meiddi sig. Það þurfti að sauma tíu spor en hún er komin aftur til starfa“, segir Ragnhildur og bendir á litla blómarós sem hefur ekki einu sinni tíma til að líta upp frá spýtunum. Anna og Ragnhildur eru sammála um að staðsetningin sé alveg kjörin, því svæðið er vaktað allan sólarhringinn en í fyrra voru allir kofarnir eyðilagðir fyrir krökkunum. Ljósmyndari VF leit við aftur í vikunni og gekk þá allt vel að öðru leyti en því að krakkarnir hafa ekki haft nóg timbur og nú vantaði það nauðsynlega. Vildu umsjónarkonur koma því á framfæri við bæjarbúa að ef þeir hefðu til aflögu spýtur þá væri vel þegið að fá þær í kofabyggðina því krakkarnir eru dugleg í smíðinni. Arnar Freyr (11) og Sindri Freyr Arnarssynir (8) og Andri Már Þorsteinsson (9) ætla að gera kofa á tveimur hæðum. „Við ætlum að gera stiga upp á aðra hæð“, segja drengirnir og sýna blaðamanni fagmannlega teikningu sem þeir gerðu sjálfir af kofanum sínum. „Við ætlum líka ð reyna að hafa grindverk umhverfis þakið. Þá getum við notað þakið sem sólpall.“„Okkar kofi verður örugglega flottastur. Við fáum meira að segja fría málningu ef við verðum búnir nógu snemma með kofann“, segja Ágúst og Árni Sæmundssynir, Ísak Þór og Guðlaugur Grétar Þosteinsson, allt smiðir með meiru.Víðir Erlingsson (10), Fannar Már Guðnason (10) og systir hans Telma Björk (7), voru búin að koma sér notalega fyrir við húsvegginn og taka upp nestið sitt, þegar blaðamaður VF kom í heimsókn. „Við erum bara í smá pásu, svo vantar okkur líka nagla og sög“, segir Víðir og Fannar bætir við að þau séu líka búin að gera allt sem þau áttu að gera í dag. „Við áttum bara að naglhreinsa og raða timbrinu“, segir Víðir og bendir á myndarlegan timburstafla skammt frá. „Við ætlum að smíða kofa sem á að líta út eins og sumarbústaðurinn hans afa, svona kubbur með smá skökku þaki“, segir Telma.Freydís Leifsdóttir (8) og Jóhanna Lilja Guðjónsdóttir (8) ætla að gera kofa eins og Halla Karen, systir Jóhönnu, gerði einu sinni, nema að þær ætla að hafa grindverk í kringum húsið. „Þegar Halla Karen var í kofabyggðinni, þá mátti ekki hafa grindverk“, upplýsir Jóhanna. „Okkar á að vera 2ja hæða og með tröppum upp á aðra hæð“, segja stelpurnar. Þær hafa aldrei smíðað kofa áður, en byggingin á eflaust eftir að ganga vel, því þessar stelpur vita nákvæmlega hvað þær vilja.