Kræklingaræktun lofar góðu
Í Vogum hefur hafa Þórður Guðmundsson og Sigurþór Stefánsson verið að gera tilraunir með kræklingaræktun frá því síðasta sumar. Árangurinn hefur verið all góður og gera þeir félagar sér vonir um að þessi tilraun geti orðið til þess að skapa nokkur störf í framtíðinni.
Að sögn Þórðar hefur komið í ljós að aðstæður undir Stapanum eru ákjósanlegar fyrir ræktunina. Þeir ákváðu að gera tilraunina fyrir opnu hafi og hefur komið í ljós að vaxtarhraði skeljarinnar er mun meiri en ella.
„Ef við náum að komast í 200 tonnin, sem er alls ekki óraunhæft, þá erum við strax komnir með heilsársstörf fyrir einhversstaðar á bilinu 5 – 10 manns og einhverja fleiri sem koma að þessu í törnunum þegar verið er að flokka skelina til útflutnings,“ segir Þórður m.a. um framtíðarhorfur í kræklingaræktinni.
Sjá nánar í Víkurfréttum á morgun.
----
Mynd: Þórður Guðmundsson skoðar kræklingalínuna. Ræktunin lofar góðu.