Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

  • Krabbameinið farið úr hægra auganu
    Litla hetjan, Ólavía Margrét. Mynd af fésbókarsíðu Guðlaugar Erlu.
  • Krabbameinið farið úr hægra auganu
    Sigvaldi Arnar Lárusson styrkti Ólavíu Margréti á dögunum með myndarlegu framlagi úr Umhyggjugöngunni milli Keflavíkur og Hofsóss.
Föstudagur 2. október 2015 kl. 16:06

Krabbameinið farið úr hægra auganu

- Ólavía Margrét Óladóttir bregst vel lyfjameðferð

Guðlaug Erla Björgvinsdóttir, ung móðir á Suðurnesjum, hefur fengið góðar fréttir úr krabbameinsmeðferð sem Ólavía Margrét Óladóttir, tæplega þriggja mánaða dóttir hennar gengst undir.

„Fyrir mánuði greindist litla kraftaverkið mitt með krabbamein í báðum augum og var hún sett í lyfjameðferð. Lyfjameðferðin er greinilega að virka því í fyrradag fékk ég fréttir sem fengu mig til þess að gráta úr gleði, krabbameinið í hægra auganu er alveg farið og það í vinstra búið að minnka,“ segir Guðlaug Erla í færslu á fésbókinni.

„Þetta er bara kraftaverk! Vil þakka öllum fyrir stuðninginn og fyrir að biðja fyrir elsku Ólavíu minni,“ segir Guðlaug Erla jafnframt í færslunni.

Sjá einnig hér: Styður barn með krabbamein í augum

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024