KPMG með skattafróðleik í Reykjanesbæ
KPMG í Reykjanesbæ stóð fyrir skattafróðleik í Krossmóa fyrir helgi þar sem Suðurnesjakonurnar Halla Björg Evans og Sigrún Rósa Björnsdóttir fóru yfir skattatengd málefni.
Miklar breytingar voru gerðar á lögum um tekjuskatt í lok síðasta árs, auk þess sem ýmsar breytingar voru gerðar á lögum sem tengjast tekjuöflun ríkissjóðs. Á fundinum var farið yfir breytingarnar og kynntar helstu áhrif þeirra.
Myndirnar voru teknar á fundinum. VF-myndir: Hilmar Bragi