Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Kostar 850 þúsund krónur að ráða nýjan bæjarstjóra
Fannar Jónasson hefur sinnt starfi bæjarstjóra frá ársbyrjun 2017.
Þriðjudagur 3. júlí 2018 kl. 10:10

Kostar 850 þúsund krónur að ráða nýjan bæjarstjóra

Það kostar 850.000 krónur að ráða nýjan bæjarstjóra til starfa í Grindavík. Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að ganga til samninga við Hagvang um aðstoð við ráðningu bæjarstjóra en þrjú tilboð bárust frá ráðningarstofum í verkið.
 
Grindavíkurbær auglýsir starf bæjarstjóra í fjölmiðlum um helgina en Fannar Jónasson hefur sinnt starfinu frá ársbyrjun 2017.
 
Í auglýsingu kemur fram að leitað er eftir öflugum og framsýnum bæjarstjóra til starfa hjá ört vaxandi bæjarfélagi en íbúafjölgun í Grindvík hefur verið 20% undanfarin áratug. Sóknarfærin séu mörg og framundan sé áframhaldandi uppbygging á ýmsum sviðum. Æskilegt sé að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024