Kosið um nafn á nýjan göngustíg
Fjölmargar tillögur bárust í hugmyndasamkeppni um nafn á nýja gönguleið meðfram strandlengjunni sem formlega var opnuð á síðastliðinni Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Búið er að yfirfara tillögurnar og nú er hægt að kjósa um þær tilllögur sem bárust á vef Reykjanesbæjar og Víkurfrétta fram til sunnudagsins 20. september.
Göngustígurinn frá Gróf að Sjávargötu er tæpir 3 km. Hann tengist svo gamla göngustígnum út við Njarðarbraut og að Fitjum. Þá var ekki alls fyrir löngu lagður nýr malarstígur að Stekk að Víkingaheimum. Næsta vor stendur svo til að klára tenginguna í gegnum Hákotstanga. Þá verður búið að tengja alla strandlengjuna saman (utan við Fitjarnar-Njarðarbraut) út á Stapa. Heildarlengd gönguleiðarinnar verður rétt um 10km.
Göngugarpar og skokkarar hafa verið mjög áberandi á göngustígum Reykjanesbæjar í sumar.
Hægt að að kjósa hér
---
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.