Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Kosið um fimm nöfn í sameinuðu sveitarfélagi
Mánudagur 9. apríl 2018 kl. 06:46

Kosið um fimm nöfn í sameinuðu sveitarfélagi

- Örnefnanefnd með tvö nöfn til viðbótar til umsagnar

Nefnd sem skipuð var til að undirbúa tillögur að nafni á nýtt sveitarfélag Garðs og Sandgerðis hefur ákveðið að senda tvær tillögur til viðbótar til umsagnar Örnefnanefndar. Áður hefur nefndin sent 15 tillögur til umsagnar og Örnefnanefnd lagst gegn 8 af þeim.
 
Örnefnanefnd hefur allt að þrjár vikur til að veita umsögn um nýju tillögurnar. Eins og áður hefur verið greint frá munu íbúar fá tækifæri til að greiða atkvæði um tillögur að nöfnum. Atkvæðagreiðsla fer fram að umsagnarfresti liðnum hjá Örnefnanefnd en þá verða tillögur að nöfnum í atkvæðagreiðslu birtar.
 
Nafnanefnd sameinaðs sveitarfélags hefur ákveðið að greidd verði atkvæði í tveimur umferðum. Í fyrstu umferð um fimm tillögur og í þeirri seinni um þau tvö nöfn sem fá flest atkvæði í fyrri umferðinni.
 
Atkvæðagreiðsla verður rafræn og munu íbúar sveitarfélaganna sem fæddir eru 2001 eða fyrr hafa atkvæðisrétt. Samhliða mun fara fram „skuggaatkvæðagreiðsla“ í grunnskólunum tveimur.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024