Konur í Reykjanesbæ stofna kvennasveit

Stofnfundurinn verður haldinn föstudaginn 16.apríl n.k. kl.19.00, á 10 ára afmælisdegi Björgunarsveitarinnar Suðurnes, í húsinu þeirra að Holtsgötu 51.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem vilja vinna að þessum málum og bjóðum við nýja félagsmenn velkomna.
KL, 20:00 í framhaldi stofnfundar, verður haldinn hátíðarfundur, þar sem tekið verður á móti boðsgestum og lög, nafn og merki kvennasveitarinnar verða kynnt. Fundarstjóri á fundinum verður Sigrún Þorsteinsdóttir sviðstjóri
hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.
Undirbúningsnefndin.