Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Könnun á beltanotkun í hópbifreiðum
Þriðjudagur 4. ágúst 2015 kl. 08:26

Könnun á beltanotkun í hópbifreiðum

-ánægjuleg niðurstaða að mati lögreglu

Lögreglan á höfuborgarsvæðinu gerði nýlega könnun, í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum, um öryggisbeltanotkun farþega í hópbifreiðum.

Bifreiðarnar voru stöðvaðar á meginleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu og var rætt við bæð ökumenn og farþega.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í ljós kom að í viðkomandi tilvikum fylgdu allir gildandi reglum um notkun öryggisbelta. Er þetta ánægjuleg niðurstaða að mati Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Lögreglan minnir á að skylda er fyrir alla aldurshópa að nota bílbelti í hópferðabifreiðum, séu þau til staðar. Farþegar, eldri en 15 ára, bera sjálfir ábyrgð á því að nota öryggisbelti í bifreiðum, sem hafa slíkan búnað en ökumaðurinn ber ábyrgð á þeim sem yngri eru.