KONA ÚTBYRÐIS Á BRAUTINNI
Umferðarslys varð með sérstæðum hætti á Reykjanesbraut á tíunda tímanum síðastliðinn mánudag er kona á sextugsaldri féll úr aftursæti bifreiðar og út úr bifreiðinni. Að sögn lögreglunnar virðist sem áfengi hafi verið með í spilinu og bifreiðin ekki verið á mikilli ferð. Konan var flutt með sjúkrabifreið á Slysadeild Sjúkrahús Reykjavíkur en ekki reyndist mögulegt að fá upplýsingar um meiðsl eða líðan konunnar.