Kona og barn mikið slösuð
Tveggja bíla árekstur varð á mótum Hringbrautar og Vesturgötu sl. sunnudag. Fimm aðilar voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar. Tveir þeirra hlutu alvarlega áverka en hinir fengu að fara heim að skoðun lokinni.Önnur bifreiðin var á leið suður Hringbraut en hin vestur Vesturgötu þegar slysið átti sér stað. Á þessum gatnamótum eru engin umferðarljós heldur stöðvunarskylda Vesturgötumegin.Kona á þrítugsaldri ók annarri bifreiðinni og með henni í bílnum voru tvö ung börn og kona á fimmtugsaldri. Eldri konan var flutt á Landspítalann í Fossvogi ásamt fimm ára dreng. Þau voru talin vera alvarlega slösuð en þó ekki í lífshættu. Ökumaðurinn og hitt barnið sluppu betur. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar var einnig fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Hlaut hann hálsáverka en fékk að fara heim að skoðun lokinni.