Kona játar íkveikju í húsi í Njarðvík
Kona hefur játað að hafa kveikt í íbúð í Njarðvík aðfararnótt fimmtudags en konan var ásamt húseiganda í íbúðinni þar sem áfengi var haft um hönd. Tilkynnt var um eld í íbúðinni um fjögurleytið aðfararnótt fimmtudags og logaði eldur á þremur stöðum í íbúðunni. Húsráðandi og konan sem var gestkomandi voru handtekin grunuð um íkveikju. Við yfirheyrslur játaði konan að hafa kveikt í íbúðinni. Íbúar á efri hæð hússins voru sofandi þegar eldurinn kom upp. Að sögn Karls Hermannssonar yfirlögregluþjóns í Keflavík er málið litið alvarlegum augum.