Komu siglandi á skútu til Grindavíkur og fengu lánaðan bíl á gosstöðvarnar
Kvikan sinnir flóttafólki, heimamönnum og túristum.
Breskir ferðamenn komu á dögunum til Íslands á heldur óhefðbundinn máta, þeir komu siglandi á skútunni sinni. Þetta eru hjón með tvo unglingssyni sem tóku fyrst land í Vestmannaeyjum, fréttu þar af jarðskjálftunum sem þá voru byrjaðir við Grindavík og sigldu þangað. Þau komu í land nóttina áður eldgosið hófst og voru að sjálfsögðu áhugasöm um að kíkja á svæðið. Þau komu við í Kvikunni, upplýsingamiðstöð Grindavíkur, og ræddu við sumarstarfsmanninn Halldóru Guðbjörgu Sigtryggsdóttur. Eftir pælingar um hvernig best yrði fyrir fjölskylduna að koma sér að gosstöðvunum ákvað Dóra eins og hún kallar sig, einfaldlega að lána fjölskyldunni bílinn sinn.
Dóra lýsti þessum fundi og hvernig starfsemi Kvikunnur hefur verið í sumar. „Móðirin kom hingað í Kvikuna morguninn eftir að þau komu, til að fá upplýsingar um hvað væri hægt að gera í Grindavík og fljótlega barst talið að gosinu sem þau voru áhugasöm um að skoða. Þau komu síðan eftir hádegið og þá var búið að opna að gosinu og eftir pælingar um hvernig best væri fyrir þau að koma sér á svæðið, ákvað ég bara að bjóða þeim að fá bílinn minn lánaðan. Ég get verið svolítið hvatvís en ég hafði góða tilfinningu fyrir þessu fólki og tók þessa ákvörðun. Þau lögðu í hann milli þrjú og fjögur og komu ekki til baka af gosinu fyrr en þrjú næstu nótt, skiluðu svo bílnum klukkan ellefu morguninn eftir. Gaman frá því að segja að það var eldri borgara kaffi morguninn eftir og ég sagði þeim frá þessu svo það var ákveðinn spenningur hvort eða hvenær þau myndu skila bílnum. Ég vissi alveg að þau myndu skila bílnum og klukkan ellefu renndu Bretarnir í hlað og leystu mig út með gjöfum, þau voru ofboðslega þakklát.“
Starfsemi Kvikunnar er ansi fjölbreytt. „Kvikan er með auglýstan opnunartíma frá 11 til 17 en ég er venjulega mætt fyrr og opna þá. Gömlu karlarnir mæta venjulega í kaffi og fara yfir heimsmálin. Eftir að flóttafólkið fór að koma til Grindavíkur hefur verið nokkuð stríður straumur þeirra hingað en við reynum að bjóða upp á afþreyingu fyrir þau. Ég er menntaður myndlistakennari, hef t.d. verið með námskeið í að leira keramik fyrir þau undanfarnar vikur. Svo er alltaf einn og einn túristi sem rennir við, heimsóknunum hefur aðeins fjölgað eftir að jarðhræringarnar hófust, útlendingarnir þurfa að fá upplýsingar. Annars vil ég hafa sem mest líf í húsinu, þá er miklu skemmtilegra en í sumar höfum við verið með sumarfjör fyrir krakkana, við erum með prjónahitting á fimmtudögum og salsakennslu. Við reynum að hafa þetta sem fjölbreyttast,“ sagði Dóra að lokum.
