Komu í veg fyrir eldsvoða
Ungir drengir komu í veg fyrir eldsvoða í íbúð að Ásabraut 11 í Reykjanesbæ aðfaranótt sunnudags.
Sögðu þeir í samtali við Víkurfréttir að þeir hefðu heyrt í reykskynjara í húsinu og runnið á hljóðið. Þegar þeir litu inn um gluggann í húsinu sáu þeir reyk og höfðu samband við neyðarlínuna þegar í stað.
Þegar lögreglan mætti spenntu þeir upp glugga þar sem þeir komu að húsráðanda sofandi í íbúðinni. Honum var ekki meint af. Plast sem lá á eldavél í húsinu hafði bráðnað og myndað mikinn reyk í húsinu en slökkviliðið reykræsti íbúðina.