Komið með Gunnþór GK vélarvana til Njarðvíkur

Farið var með skipið til Njarðvíkur og sóttist ferðin seint þar sem foráttubrim og þungur sjór hömluðu för. Björgunarskipið kom til Njarðvíkur með Gunnþór GK rétt fyrir kvöldmat og aðstoðaði hafnsögubáturinn Auðunn við að koma Gunnþóri GK að bryggju.