Kom siglandi upp Grænásbrekkuna
Það er ekki dagleg sjón að sjá báta í umferðinni. Pálína Ágústsdóttir GK skellti sér þó út á meðan bíla í dag. Hún var dregin á sérstökum vagni Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur um götur Reykjanesbæjar í morgun.
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Pálína Ágústsdóttir GK kom „siglandi“ upp Grænásbrekkuna í Njarðvíkum í lögreglufylgd. Okkur er ekki kunnugt um áfangastaðinn.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson