Kólnar um helgina
Veðurspá fyrir Faxaflóa næsta sólarhringinn: Sunnan 8-13 m/s og él. Hægari austlæg átt á morgun og stöku él. Vægt frost, en kólnar heldur á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á sunnudag:
Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og sums staðar él, einkum við austurströndina. Frost 1 til 8 stig.
Á mánudag:
Sunnan og suðaustan 8-13 m/s og snjókoma með köflum, en slydda við suðurströndina. Heldur hlýnandi.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum, einkum sunnan- og vestantil á landinu. Svalt í veðri.