Köld norðaustanátt
Veðurspá dagsins fyrir Faxaflóasvæðið: Norðaustan 8-13 m/s og skýjað með köflum. Hiti nálægt frostmarki.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Norðaustan 5-10 m/s og bjartviðri, en þykknar upp á morgun. Hiti í kringum frostmark.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Norðan- og norðaustanátt, víða 5-10 m/s. Skýjað með köflum og dálítil él N-lands og við suðurströndina. Hiti 0 til 5 stig syðst, annars vægt frost.
Á miðvikudag:
Austlæg átt og víða bjartviðri, en dálítil él SA- og A-lands. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.
Á fimmtudag og föstudag:
Norðaustanátt, snjókoma og síðar slydda eða rigning með köflum, en þurrt að mestu SV- og V-lands. Hlýnandi veður.
Á laugardag og sunnudag:
Líkur á austlægri átt með rigningu eða slyddu víða um land.