Kokkar í öllum skólum
Matarlyst Atlanta ehf. mun elda ofan í káta krakka í grunnskólum Reykjanesbæjar en samningur þess efnis var undirritaður í gær. Það var meistarakokkurinn Axel Jónsson og bæjarstjórinn Árni Sigfússon sem skrifuðu undir samninginn en Stefán Bjarkason, menningar- íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, Hjördís Árnadóttir, félagsmálastjóri, og Eiríkur Hermannsson, fræðslustjóri, voru einnig viðstödd undirritunina.
Nánari umfjöllun má finna í tölublaði Víkurfrétta sem kemur út á morgun.
VF-mynd: AMG