MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Klippum beitt til að ná ökumanni úr bifreið
Föstudagur 8. september 2017 kl. 11:46

Klippum beitt til að ná ökumanni úr bifreið

Óvenju mikið var um umferðarslys og umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Bifreið sem var á biðskyldu var ekið í veg fyrir aðra bifreið. Klippa þurfti annan ökumannanna út úr sinni bifreið og var hann fluttur á Landspítala. Hann reyndist hafa hlotið beinbrot auk fleiri meiðsla.

Þá varð árekstur á langtímastæðinu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Annar ökumannanna var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Þrennt var svo flutt með sjúkrabifreið á HSS eftir harðan árekstur á Hafnargötu í Grindavík. Meiðsli þeirra reyndust ekki vera alvarleg.

Bílakjarninn
Bílakjarninn