Bygg
Bygg

Fréttir

Klippt af þremur
Föstudagur 24. mars 2006 kl. 09:16

Klippt af þremur

Eftir miðnætti stöðvaði Lögreglan í Keflavík þrjá ökumenn fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast fór var mældur á 119 km þar sem hámarkshraði er 90 km. Skráningarnúmer voru tekin af þremur ökutækjum vegna vangoldinna tryggingagjalda. Eitt ökutæki var boðað í skoðun vegna vanrækslu á aðalskoðun.
Þá var einn ökumaður kærður í gær fyrir að aka um með þokuljós kveikt án þess að skilyrði til notkunar á slíkum ljósum væru fyrir hendi.
Bílakjarninn
Bílakjarninn