Kaffi Duus Jólahlaðborð
Kaffi Duus Jólahlaðborð

Fréttir

Klippt af átta bifreiðum
Mánudagur 7. janúar 2013 kl. 14:09

Klippt af átta bifreiðum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum klippt númer af átta bifreiðum. Fimm þeirra höfðu ekki verið færðar til aðalskoðunar á tilsettum tíma og þrjár til viðbótar voru bæði óskoðaðar og ótryggðar.

Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem ók með filmur í fremri hliðarrúðum bifreiðar sinnar. Ökuréttindi hans voru að auki útrunnin. Annar ökumaður ók einnig án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100