Klemmdist á handlegg
Togbáturinn Oddgeir EA-600 með slasaðan sjómann til hafnar í Grindavík laust eftir klukkan tvö í nótt. Sjómaðurinn hafði klemmst á milli toghlera og lunningar þegar verið var að hífa trollið inn. Hann slasaðist á vinstri handlegg og var fluttur með sjúkrabifreið frá Grindavík á slysadeild Landsspítalans háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
Mynd úr safni