Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Kjarasamningar við sveitarfélögin samþykktir
Föstudagur 11. desember 2015 kl. 16:44

Kjarasamningar við sveitarfélögin samþykktir

Atkvæði voru í dag talin í póstatkvæðagreiðslu Flóabandalagsins um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var þann 20. nóvember sl. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis er m.a. aðili að Flóabandalaginu. Kjarasamningurinn var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða eða 93% atkvæða. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:

Já sögðu 196 eða 93% þeirra sem atkvæði greiddu

Nei sögðu 14 eða 6,6%

Auðir seðlar og ógildir voru 1 eða 0,4%

Samkvæmt þessum úrslitum er samkomulagið samþykkt. Á kjörskrá voru alls 831  félagsmenn. Atkvæði greiddu 211 eða 24,5%.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024