Kjaradeilu Flóafélaganna vísað til ríkissáttasemjara
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Efling – stéttarfélag og Verkalýðsfélagið Hlíf sendu í dag tilkynningu til ríkissáttasemjara og Samtaka atvinnulífsins um að yfirstandandi kjaradeilu Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK hafi í dag verið vísað til ríkissáttasemjara.
Samningaviðræður hafa ekki skilað árangri og tók stóra samninganefnd Flóafélaganna þessa ákvörðun einróma á fundi nefndarinnar í gærkvöldi.