Kjarabarátta kennara: 20 af 28 kennurum við Njarðvíkurskóla segja upp
Af þeim 28 kennurum sem starfa við Njarðvíkurskóla sögðu 20 þeirra störfum sínum lausum í dag. Í yfirlýsingu frá þeim segir að grunnskólakennarar séu ósáttur við að vera ekki metnir að verðleikum og að Samband íslenskra sveitarfélaga skuli ekki sjá hag sinn í að semja vel við sérfræðinga sem sérhæfa sig í að kenna, fræða og ala upp æsku landsins.
Kennararnir 20 láta af störfum 28. febrúar næstkomandi.
Yfirlýsing kennaranna er eftirfarandi:
Kjarabarátta grunnskólakennara stendur nú yfir, en þeir hafa verið kjarasamningslausir síðan í maí síðastliðnum. Grunnskólakennarar eru ósáttir við að vera ekki metnir að verðleikum og að SÍS skuli ekki sjá hag sinn í semja vel við sérfræðinga sem sérhæfa sig í að kenna, fræða og ala upp æsku landsins.
Við Njarðvíkurskóla starfa 28 grunnskólakennarar fyrir utan leiðbeinendur, stjórnendur og annað starfsfólk sem og kennara sem eru í leyfi frá störfum. Af þessum 28 kennurum hafa 20 sagt upp sínum störfum í dag, sem er 71% kennaramenntaðra starfsmanna við skólann þetta skólaár. Á bak við þessa 20 kennara eru 206 kennsluár. Ekki er útséð að fleiri muni fylgja í kjölfarið.
Áætluð starfslok eru 28. febrúar 2017.
Virðingafyllst,
Grunnskólakennarar við Njarðvíkurskóla