Fréttir

Kiwanismenn afhentu styrki við opnun jólatrjéssölu
Þórunn Þórisdóttir frá Velferðarsjóði Suðurnesja og Anna Valdís Jónsdóttir frá Fjölskylduhjálp Suðurnesja tóku við styrkjum frá Kiwanismönnum en Tóbías Brynleifsson afhenti þeim gjafabréf því til staðfestingar. Á myndinni eru þau þrjú og fleiri góðir Kiwa
Föstudagur 14. desember 2018 kl. 15:16

Kiwanismenn afhentu styrki við opnun jólatrjéssölu

Hafa selt jólatré í tæp 40 ár

Kiwanisklúbburinn Keilir hefur í nærri fjörutíu ár verið með sölu á lifandi jólatrjám. Um síðustu helgi afhentu Kiwanisfélagar veglega peningastyrki til Fjölskylduhjálpar á Suðurnesjum og Velferðarsjóðs Suðurnesja. „Við vitum að þessir styrkir fara á góða staði í gegnum þessa aðila,“ sagði Tóbías Brynleifsson, forseti Kiwanisklúbbsins Keilis.

Að venju er boðið upp á mikið úrval af fallegum, íslenskum jólatrjám, stórum sem smáum en einnig greni­skreytingum og greniefni. Jólatréssalan er ekki jafn stór í fjáröflun klúbbsins eins og þegar hún var sem stærst fyrir allmörgum árum síðan  en þá seldust mest tvö þúsund tré á Suðurnesjum í gegnum Keilismenn. Engu að síður er þetta árleg hefð hjá klúbbnum og félagar sinna jólatréssölunni af ánægju og kemur þeim í jólaskap. Fjöldi Suðurnesjamanna koma á hverju ári og kaupa af þeim tré og skreytingar. Allur ágóði af starfi þeirra fer til góðgerðarmála. „Við höfum þurft að sækja á önnur mið í fjáröflun en við höldum m.a. lundakvöld og kótilettukvöld. Þá afhendum við Lundann á hverju ári til aðila sem hafa skarað framúr á einhvern hátt,“ sögðu þeir félagar við tíðindamann Víkurfrétta.

Jólatréssalan er í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum í Njarðvík eins og hún hefur verið undanfarin ár.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það er mikið úrval af jólatrjám og skreytingum hjá þeim Kiwanismönnum.