Kiwanis færir jólastyrki - opna jólatréssölu á Fitjum
Undanfarin ár hefur Kiwanisklúbburinn Keilir afhent styrki til Fjölskylduhjálpar og Velferðarsjóðs í upphafi jólatrésölu. Árið í ár er engin undantekning á þeirri venju, formaður styrktarnefndar Ingólfur Ingibergsson og Reynir Friðriksson, forseti klúbbsins heilsuðu í þetta skiptið upp á Þórunni Þórisdóttur hjá Velferðarsjóði og Önnu Valdísi Jónsdóttur hjá Fjölskylduhjálpinni til að afhenda styrki upp á kr. 500.000,- og tíu jólatré á hvorn stað og voru myndirnar teknar við það tækifæri.
Þess má geta að jólatrésalan sem er í porti Húsasmiðjunnar hófst föstudaginn 11. desember og er opin frá kl. 17 til 19 á virkum dögum, 12 til 18 á laugardögum og 14 til 18 á sunnudögum alveg fram að jólum.