Bygg
Bygg

Fréttir

Kísilverksmiðjan loks að komast á koppinn í Helguvík
Föstudagur 7. janúar 2011 kl. 12:18

Kísilverksmiðjan loks að komast á koppinn í Helguvík

Framkvæmdir við nýja kísilverksmiðju hefjast á næstu mánuðum en orkusamningar eru á lokastigi.150 manns munu fá starf við uppbygginguna en síðan verða til um 90 framtíðarstörf við verksmiðjuna. „Þetta er vonandi fyrsta af mörgum nýjum atvinnuverkefnum sem kemst í gang,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Íslenska kísilfélagið hefur undirbúið verkefnið í 4 ár og verksmiðjan mun rísa í Helguvík. Nýtt bandarískst fyrirtæki er í samvinnu við Íslenska kísilfélagið sem hefur gengið frá öllum leyfum til að hefja rekstur. Því geta framkvæmdir hafist á næstu vikum eftir undirskrift orkusamnings og fjárfestingasamnins.
Til stendur að framleiða í tveimur ofnum hrákísil alls 50 þús. tonn á ári. Kaupendur eru framleiðendur sólarrafhlaðna.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikilvægt þetta er fyrir atvinnulífið á Suðurnesjum.
Nýja verksmiðjan mun þurfa um 65 mw og fá hana frá Landsvirkjun og HS Orku en í framtíðinni muni Landsvirkjun taka yfir þann þátt þannig að HS Orka geti látið alla sína orku fara til álvers í Helguvík.