Fréttir

  • Kísilverksmiðja rís hratt í Helguvík
    Stálgrind kísilvers United Silicon rís nú hratt í Helguvík. VF-myndir: Hilmar Bragi
  • Kísilverksmiðja rís hratt í Helguvík
    Verksmiðjuhús United Silicon rís í Helguvík.
Föstudagur 28. ágúst 2015 kl. 11:52

Kísilverksmiðja rís hratt í Helguvík

– skip með búnað fyrir verksmiðjuna til hafnar í morgun

Verksmiðja United Silicon í Helguvík rís hratt þessa dagana. Einn af ofnum kísilversins hefur verið settur saman á lóð United Silicon. Talsvert hefur verið steypt af undirstöðum verksmiðjuhússins og nú eru starfsmenn ÍAV byrjaðir að reisa stálgrind verksmiðjunnar.

Í morgun kom skip til hafnar í Helguvík með mikið af búnaði fyrir kísilverksmiðjuna. Verður búnaðinum skipað upp í dag og á morgun en um borð í skipinu eru mörg stór stykki eins og sjá má á myndinni hér að neðan.



Þetta stóra síló var m.a. um borð í skipinu sem kom til Helguvíkur í morgun.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024