Bygg
Bygg

Fréttir

Kísilverið býður upp á launaviðbót
Föstudagur 12. ágúst 2016 kl. 21:00

Kísilverið býður upp á launaviðbót

- framleiðsla af stað í september að sögn stjórnarmanns

Stjórnarmaður hjá United Silicon segir fullyrðingar verkalýðsforingjans Kristjáns Gunnarssonar að fyrirtækið muni greiða lág laun og ala á erlendu vinnuafli rangar. Fyrirtækið muni greiða hærri laun en kjarasamningar segja til um með sérstakri launauppbót. Ákvörðun félagsins um að gera ekki sérkjarasamning að svo stöddu geti komið til skoðunar síðar, sérstaklega þegar verksmiðjan í Helguvík verður fullkláruð með fjóra ofna og framleiðslugetu upp á 130 þúsund tonn. Til stendur að hefja kísilframleiðslu í byrjun september.

„Við erum að greiða hærri laun en kjarasamningar segja til um með sérstakri launaviðbót sem er föst upphæð. Þetta er ofan á dagvinnu- og næturvinnulaun skv. kjarasamningum. Þetta er launauppbót sem félagið hefur ákveðið að bjóða sínum starfsmönnum. Ég get ekki nefnt upphæðina hér að svo komnu máli,“ segir Auðun Helgason stjórnarmaður hjá fyrirtækinu í samtali við Víkurfréttir.

„Ástæðan fyrir því að við greiðum launauppbót er til þess að bjóða samkeppnihæf laun. Þannig teljum við möguleika okkar á að fá gott starfsfólk til okkar aukast. Félagið ákvað að gerast aðili að Samtökum atvinnulífsins. Okkar kjarastefna var rædd við aðila frá SA. Eftir að hafa metið stöðuna þá var ákveðið að greiða þessa upphæð ofan á kjarasamningsbundin laun.“

Auðun segir þó að sú ákvörðun geti komið til endurskoðunar síðar. „Við viljum gera vel við okkar starfsfólk og að starfsmenn séu ánægðir með laun og aðbúnað. Það getur alveg farið svo að við endurskoðum þessa ákvörðun okkar eins og aðrar ákvarðanir. Félagið á eftir að fara í frekari fjárfestingar við stækkun verksmiðjunnar og það er eðlilegt að endurmeta stöðuna þá. Við gerum ráð fyrir að hjá félaginu muni starfa um 150-160 manns þegar verksmiðjan er fullkláruð.“
Nú þegar hafa 28 starfsmenn verið ráðnir til starfa og verða þeir 50 talsins nú í fyrsta áfanga. Auðun segir að vel hafi gengið að fá fólk til starfa. „Atvinnuástandið er orðið mjög gott á Suðurnesjum. Við finnum því fyrir því á síðustu misserum að samkeppnin er að harðna um starfsfólk. Við fögnum því eins og aðrir. Við gerum okkur alveg ljóst að við þurfum að gera vel við okkar starfsfólk. Annars fer það annað.“ Af þeim 28 sem nú eru komnir til starfa eru fjórir erlendir ríkisborgarar. „Þetta fólk býr í eigin húsnæði og hafa búið hér í lengri tíma. Það stendur ekki til að flytja inn sérstaklega erlent vinnuafl,“ segir Auðun.

Til stendur að hefja framleiðslu í september en framkvæmdir töfðust örlítið. Að sögn Auðuns þá komu upp ófyrirsjáanleg atvik við gangsetningu á rafmagnsbúnaði sem seinkaði framleiðslu. Auðun vill ekki tjá sig um samskipti United Silicon og ÍAV en þar er ágreiningur um lokauppgjör og verður málið leyst með dómi. Hann segir það mál ekki hafa tafið fyrir framleiðsluferlinu „Verksmiðjan er risin og verið er að hnýta lausa enda.“

Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, sagði það mikil vonbrigði að United Silicon og Samtök atvinnulífsins muni ekki gera sérkjarasamninga við starfsmenn kísilverksmiðjunnar, í Víkurfréttum í síðustu viku.

„United Silicon er lítið fyrirtæki miðað við álverin sem hafa á bilinu 450-600 starfsmenn. Það er risin fyrsta kísilverksmiðjan á Íslandi og við erum að fikra okkur áfram. Eflaust gerum við einhver mistök á þeirri leið. Mistökin eru til að læra af. Við erum þó að róa öllu árum að því að byggja upp öflugt félag til langs tíma“ segir Auðun og ítrekar að United silicon leggi mikla áherslu á það að eiga gott samstarf við samfélagið á Suðurnesjum. „Það er algjörlega á hreinu að það er vilji okkar að eiga gott samstarf við fyrirtæki, stofnanir og fólk á Suðurnesjum. Um það eru allir sammála.”

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn