Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Fréttir

Kínverskar konur handteknar með fölsuð vegabréf
Miðvikudagur 26. mars 2008 kl. 22:06

Kínverskar konur handteknar með fölsuð vegabréf

Tvær kínverskar konur voru handteknar í Leifsstöð á föstudaginn langa þegar þær reyndu að komast inn í landið á fölsuðum vegabréfum. Konurnar eru á þrítugsaldri og framvísuðu þær suður-kóreskum vegabréfum sem búið var að falsa.

Þær voru dæmdar í 30 daga fangelsi fyrir brot sín og samkvæmt heimildum Vísis.is, sem greinir frá fréttinni, er líklegast að þeim verði vísað úr landi þegar þær hafa afplánað dóminn.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk


Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar