Kindurnar komust í öruggt skjól til Keflavíkur
Sigrún Eggertsdóttir er ættuð úr Vík í Grindavík en þar hefur fjárbúskapur farið fram nánast síðan byggð myndaðist í Grindavík. Amma og afi Sigrúnar eru Lína og Gvendur í Vík en Sigrún fór með afa sínum að bjarga rollunum á laugardaginn og gekk allt eins og í sögu. Í spjalli við blaðamann Víkurfrétta fór hún yfir hvernig þetta gekk og hvernig hún sér nánustu framtíð fyrir sér. Hægt er að hlusta í spilaranum hér að neðan.


