Keyrði á vegg í hálkunni
- Ökumaðurinn meiddist ekki.
Ökumaður sem var á ferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á vegg við íbúðarhús. Hálka var á þessum tíma og skemmdist bifreiðin talsvert en ökumaðurinn slapp ómeiddur.
Annað óhapp varð þegar ökumaður ók á ljósastaur. Hann slapp án meiðsla en bifreiðin var flutt af vettvangi með dráttarbíl.
Á Grindavíkurvegi mældist bifreið á 127 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.