Miðvikudagur 16. október 2002 kl. 13:43
Kerra með björgunarbúnaði valt

Kerra með neyðarbúnaði frá björgunarsveitinni Suðurnes skemmdist talsvert í umferðaróhappi sem varð á Strandarheiði eftir hádegi. Kerran losnaði aftan úr björgunarbifreið, fór yfir á rangan vegarhelming og stakkst út í móa.Mildi er að engin slys urðu á fólki því töluverð umferð var þegar óhappið átti sér stað.