Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Kennurum í Akurskóla nóg boðið eftir ákvörðun Kjararáðs
Miðvikudagur 2. nóvember 2016 kl. 18:07

Kennurum í Akurskóla nóg boðið eftir ákvörðun Kjararáðs

- Að óbreyttu verða hópuppsagnir 1. maí 2017

Kennurum í Akurskóla er nóg boðið eftir nýjustu fréttir af launahækkunum ráðamanna. Þolinmæði þeirra er á þrotum og segir í ályktun sem samþykkt var á kennarafundi í dag að þeir telji að lítið sé gert úr störfum þeirra. Þeir segja ástand í launamálum stéttarinnar ólíðandi og að sífellt fleiri kennarar sæki í önnur störf. Ríki og sveitarfélög geti ekki lengur vikið sér undan ábyrgð. Verði ekki breytingar á boða kennarar Akurskóla hópuppsagnir þann 1. maí næstkomandi.

Ályktunin er eftirfarandi:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þolinmæði kennara Akurskóla er á þrotum. Við teljum að lítið sé gert úr okkar störfum og nýjustu fréttir af launahækkunum æðstu ráðamanna eru kornið sem fyllti mælinn.

Algerlega óháð því hvort kjararáð dragi sinn úrskurð til baka hafa kennarar enga þolinmæði lengur gagnvart samningaviðræðum sem miða að því að láta fjölbreytt skólastarf passa í „Excel skjal“ og hártogunum um atriði sem litlu máli skipta.

Við vitum í hverju starf okkar felst og þurfum ekki að láta skilgreina það fyrir okkur.

Núverandi ástand í stéttinni er ólíðandi og æ fleiri kennarar flýja i önnur störf, færri sækja í grunnskólakennaranámið og því er framtíðin mjög óljós. Einnig er ómögulegt að troða grunnskólum landsins í fyrrnefnt Excelskjal því þar er ekki tekið tillit til þess fjölbreytileika sem fylgir skóla án aðgreiningar.

Hvorki ríki né sveitarfélög geta lengur vikið sér undan ábyrgð og hvað þá falið sig á bak við samninganefnd sveitarfélaga. Við viljum hærri laun en ekki stöðuga sölu á réttindum okkar og krefjumst launa samkvæmt þeirri ábyrgð sem við berum í okkar starfi.

Við förum fram á að framkvæmdar verði viðeigandi aðgerðir til að framkalla samræmda vinnustöðvun grunnskólakennara strax og teljum það skyldu KÍ að fara að þeim tilmælum.

Að óbreyttu verður gripið til hópuppsagna 1. maí 2017.

Einnig bendum við á að um miðja síðustu öld voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara og förum fram á að það viðmið verði tekið upp að nýju.

 Ályktun þessi var samþykkt á kennarafundi 2. nóvember 2016.

Kennarar við Akurskóla