Kemur Clint aftur í svarta sandinn á Reykjanesi?
Clint Eastwood mun gera tvær kvikmyndir um innrásina á Kyrrahafseyjuna Iwo Jima. Sem kunnugt er voru umfangsmikil atriði úr myndinni Flags of our Fathers tekin í Sandvík á Reykjanesi og í Krýsuvík nú síðsumars. Tökum á þeirri mynd mun ljúka síðar í þessum mánuði í Chicago í Bandaríkjunum.
Clint Eastwood hefur lengi viljað sýna báðar hliðar árásarinnar á Iwo Jima en hann vildi ekki gera það á þann hátt að stökkva fram og til baka yfir víglínuna. Clint Eastwood ræddi við Paul Haggis, sem skrifaði kvikmyndahandrit Flags of our Fathers, og vildi fá hann til að skrifa handrit út frá sjónarhorni Japana. Haggis var hins vegar yfirbókaður og því fékk Clint handritshöfund af japans-bandarískum ættum, Iris Yamashita, til að vinna kvikmyndahandritið. Yamashita vann einnig að Flags of our Fathers.
Kvikmyndin sem sýnir bardagann um Iwo Jima frá sjónarhorni Japana heitir Lamps Before the Wind og munu tökur á henni hefjast í febrúar á næsta ári. Sagan hefst á bardaga í svörtum sandi Iwo Jima, en þær senur voru allar kvikmyndaðar í Sandvík á Reykjanesi. Það er því spurning hvort Eastwood sé aftur á leiðinni til Reykjanesbæjar með kvikmyndatökulið til þess að taka upp bardagana frá öðru sjónarhorni?
Myndirnar verða síðan báðar frumsýndar næsta haust.
Ljósmynd: Clint Eastwood í fjörunni í Sandvík.