Bygg
Bygg

Fréttir

Keiliskennari heiðraður
Miðvikudagur 6. júní 2018 kl. 14:39

Keiliskennari heiðraður

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í dag. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins ­„Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is. Tilgangur átaksins var að vekja at­hygli þjóðar­inn­ar á kenn­ara­starf­inu; hversu áhuga­vert og skemmti­legt það er og hversu mik­il áhrif kenn­ar­ar hafa á ein­stak­linga og sam­fé­lagið.

Viðtökurnar voru afar góðar en hátt í þúsund tilnefningar bárust. Valnefnd skipuð fulltrúum Háskóla Íslands, Kennarasambands Íslands og kennaranema fór yfir tilnefningarnar samkvæmt ákveðnum viðmiðum. Niðurstaðan var sú að veita fjórum framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu. Í fyrsta sinn voru veitt sérstök hvatningarverðlaun til ungs kennara fyrir framsækin störf í þágu menntamála sem hafa vakið athygli á alþjóðavettvangi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Eftirfarandi kennarar hljóta viðurkenningu að þessu sinni:
Gísli Hólmar Jóhannesson, Keili
Sara Diljá Hjálmarsdóttir, Höfðaskóla
Sigríður Ása Bjarnadóttir, Leikskólanum Teigaseli
Valdimar Helgason, Réttarholtsskóla