HSS
HSS

Fréttir

Keilir netsambandslaus – ljósleiðari í sundur
Föstudagur 31. ágúst 2007 kl. 10:55

Keilir netsambandslaus – ljósleiðari í sundur

Háskólinn Keilir á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli er nú bæði  netsambandslaus og án símasambands um landlínu. Samkvæmt upplýsingum, sem nemandur skólans hafa fengið, er orsökin sú að starfsmenn Mílu klipptu af vangá sundur ljósleiðara sem tengdi háskólann. Frá þessu er greint á fréttavefnum Eyjan.is

Á vefsvæði skólans stendur eftirfarandi:
„Því miður liggur allt netsamband á skrifstofu Keilis niðri í dag föstudag, og því munum við ekki ná að svara öllum erindum sem berast með tölvupósti. Einnig gæti orðið erfitt að ná í okkur í síma í dag. Við biðjumst velvirðingar á þessu og vonum að það valdi ekki miklum óþægindum.“

 

 

 


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn