Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Keilir býður upp á endurmenntun atvinnubílstjóra
Mánudagur 22. ágúst 2016 kl. 10:00

Keilir býður upp á endurmenntun atvinnubílstjóra

Samkvæmt nýrri reglugerð verða atvinnubílstjórar (ökuréttindi í flokkum C1, C, D1 og D) að sækja endurmenntun á fimm ára fresti. Keilir hefur fengið viðurkenningu Samgöngustofu til að bjóða upp á endurmenntun bílstjóra til farþegaflutninga og vöruflutninga í atvinnuskyni og hyggst bjóða upp á námskeiðin frá og með næsta hausti.

Til að byrja með mun Keilir bjóða upp á eftirfarandi kjarnanámskeið:

Vistakstur – öryggi í akstri
Markmiðið er að bílstjórinn þekki hugmyndafræði vistaksturs og með hvaða hætti hann getur lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun og hámarkað öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi.

Lög og reglur
Markmiðið er að bílstjórinn þekki helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki og geri sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma.

Umferðaröryggi - bíltækni
Markmiðið er að bílstjórinn þekki vegakerfið og helstu hættur sem eru til staðar eða geta skapast í tengslum við ytri aðstæður, s.s. við mismunandi veðurskilyrði. Einnig að hann þekki helstu tegundir og orsakir umferðar- og vinnuslysa og þekki aðferðir við slysavarnir.

Keilir hefur á undanförnum árum verið leiðandi aðili í innleiðingu nýrra kennsluhátta sem miða við þarfir fullorðinna nemenda. Námskeið Keilis til endurmenntunar atvinnubílstjóra verða lifandi og munu byggja á virkri þátttöku nemenda.

Upplýsingar frá Samgöngustofu

Bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni skal sækja 35 kennslustunda endurmenntun á fimm ára fresti. Þeir bílstjórar sem fengið hafa réttindi sín fyrir 10. september 2013 þurfa að klára endurmenntun fyrir 10. september 2018. Hinir og reyndar allir sem endurnýja ökuskírteinið sitt með þessum flokkum eftir þann tíma þurfa að hafa klárað endurmenntun.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Samgöngustofu eða með því að hafa samband við Keili.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024