Miðvikudagur 9. október 2002 kl. 16:42
Keflavíkurverktakar í sóknarhug í ferðaþjónustu: 100 herbergja Flughótel?

Keflavíkurverktakar hafa að undanförnu verið að skoða stækkun á Flughóteli úr 40 herbergja í um og yfir eitthundrað herbergja hótel. Róbert Trausti Árnason, framkvæmdastjóri Keflavíkurverktaka segir að þeir hafi að undanförnu verið að skoða þetta mál af alvöru. “Við teljum að þessi stækkun gæti verið mjög heppileg og það sé vænlegra til framtíðar litið að hótelin í miðbæ Reykjanesbæjar séu stærri en að byggja hótel við Leifsstöð. Þeir sem komi til Íslands hafi meiri áhuga á að gista nær mannlífi og veitingastöðum en við flugstöðina".Róbert segir að vöntun sé á stærri og myndarlegri ráðstefnusölum og tengdri þjónustu og þar séu sóknarfæri.
“Við þurfum að vinna þetta í samráði við byggingar- og skipulagsyfirvöld en hugur okkar stefnir í meiri og stærri mál á Flughóteli", sagði Róbert.
Verði af þessu er líklegt að Flughótelið verði hæsta hús á svæðinu en tvö íbúðarháhýsi eru í byggingu í nágrenni þess.
Myndin: Hugsanleg stækkun yrði meðal annars ofan á þann hluta hússins sem nú hýsir Kjarna. VF-mynd: Hilmar Bragi