Föstudagur 19. apríl 2002 kl. 19:45
Keflavíkurlæknar í kjarabaráttu

Allir heilsugæslulæknar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa sagt upp störfum frá og með 1. maí nk. Uppsagnir taka gildi þremur mánuðum síðar.Jóhann Einvarðsson, framkæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, sagði í samtali við Víkurfréttir að læknarnir ættu í slag við kerfið en eins og fram hefur komið í fréttum eru læknar að missa ýmsar aukagreiðslur, s.s. fyrir vottorð og fleira.
Jóhann sagðist vonast til þess að til uppsagnanna kæmi ekki. Allir læknarnir hefðu tekið fram í uppsagnarbréfum sínum að mjög gott væri að starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og uppsagnir væru í raun bara vegna kjaramála.