Keflavíkurhraðlestin rædd í hádeginu í dag
	Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, KADECO, býður til hádegisfyrirlestrar í Offiseraklúbbnum á Ásbrú í dag. Runólfur Ágústsson ráðgjafi mun fjalla um möguleika háhraðalestar á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur á hádegisfyrirlestri í boði Kadeco í dag kl. 12.00–12.45 í Offiseraklúbbnum, Grænásbraut 619.
	
	Á fyrirlestrinum verður velt upp spurningum eins og:
	
	– Er hraðlest á milli Keflavíkur og Reykjavíkur aðeins spurning um tíma?
	– Hverju myndi hún breyta fyrir samfélagið á Suðvesturlandi?
	– Hvaða þýðingu hefði hún fyrir þróun innanlandsflugs á Íslandi?
	– Hvað kostar framkvæmdin og hvernig yrði hún fjármögnuð?
	– Hverjir væru tilbúnir að leggja fjármagn í verkið?
	– Gæti það borgað sig upp á nokkrum árum?
	
	Fundurinn um Keflavíkurhraðlestina er hluti af þriðjudagsfyrirlestraröð Kadeco, Geopark, Heklunnar, Keilis og Markaðsstofu Reykjaness.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				