Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Keflavíkurflugvöllur veldur auknum umsvifum í Helguvíkurhöfn
    Olíuskipið Vendome Street kemur til hafnar í Helguvík. Fyrir í höfninni var skipið Abis Bilbao sem flutti byggingarefni og búnað í kísilver United Silicon. VF-myndir: Hilmar Bragi
  • Keflavíkurflugvöllur veldur auknum umsvifum í Helguvíkurhöfn
    Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, tók á móti skipinu á mánudag.
Laugardagur 26. september 2015 kl. 08:58

Keflavíkurflugvöllur veldur auknum umsvifum í Helguvíkurhöfn

Það hefur verið þröngt á þingi í Helguvíkurhöfn að undanförnu. Þar voru samtímis sl. mánudag bæði flutningaskip að koma með byggingarefni fyrir kísilver United Silicon og  ríflega 180 metra langt eldsneytisflutningaskip  sem kom með flugvélaeldsneyti fyrir Keflavíkurflugvöll. Skipið heitir Vendome Street og er 183 metra langt og flytur 35.000 tonn af flugvélaeldsneyti sem verður dælt á tanka bæði í Helguvík og á Keflavíkurflugvelli.

Ein af birtingarmyndum aukningar flugumferðar um Keflavíkurflugvöll er tíðari komur eldsneytisflutningaskipa í Helguvíkurhöfn. Þannig er eldsneytisskipið sem kom á mánudag það fjórða sem kemur hingað síðan í maí.

Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, tók á móti skipinu á mánudag og hann fagnar aukinni umferð um Helguvíkurhöfn enda þýðir svona skipakoma talsverðar tekjur í kassann fyrir höfnina. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að bara hafnargjöld af svona skipakomu séu vel á aðra milljón króna og þá eiga eftir að leggjast vörugjöld á farminn sem er landað.

Halldór sagði í samtali við Víkurfréttir að nú væri staðan sú að það væri þröngt á þingi í höfninni. Nokkrum mínútum áður en olíuskipið kom í höfn yfirgaf grænlenskt fjölveiðiskip höfnina og þá er verið að skipa upp úr flutningaskipi sem kom með byggingarefni fyrir kísilver United Silicon.

Þörf er orðin fyrir lengri viðlegukanta í höfninni vegna kísilveranna, bæði fyrir aðföng og útflutning. Þá má búast við tíðari komum olíuskipa vegna aukinnar flugumferðar til og frá Keflavíkurflugvelli. Forsvarsmenn Reykjanesbæjar og hafnarinnar áttu fund í vikunni með fulltrúum frá fjárlaganefnd og átti m.a. að ræða Helguvík á þeim fundi.

Olíuskip koma orðið oftar við í Helguvík á leið sinni frá Suður-Ameríku til Noregs til að létta á sér fyrir siglingu inn þröngan Oslóarfjörð á leið með eldsneyti sem m.a. er notað á Gardemoen-flugvelli. Olíuskipið sem var í Helguvík í vikunni kom hingað frá Venesúela og verður farmurinn, um 35.000 tonn af flugvélaeldsneyti, allur settur á tanka í Helguvík og á Keflavíkurflugvelli.


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024