Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Keflavíkurflugvöllur valinn sá besti í Evrópu
Verðlaunin eru veitt af alþjóðasamtökum flugvalla í Evrópu.
Föstudagur 8. júlí 2016 kl. 12:34

Keflavíkurflugvöllur valinn sá besti í Evrópu

- Í flokki flugvalla með færri en 5 milljónir farþega

Keflavíkurflugvöllur var á dögunum valinn besti flugvöllur Evrópu í flokki flugvalla með færri farþega en 5 milljónir. Verðlaunin eru veitt af alþjóðasamtökum flugvalla í Evrópu (ACI Europe). Verðlaunin eru veitt þeim flugvöllum sem þykja skara fram úr í rekstri flugvalla en í samtökunum eru yfir 500 flugvellir í 45 löndum Evrópu. Meðal þeirra flugvalla sem hlutu verðlaunin í sínum stærðarflokki eru Glasgow flugvöllur, flugvöllurinn i Brussel og Heathrow flugvöllur í London. Verðlaunin voru afhent á ráðstefnu evrópskra flugvalla sem haldin var í Grikklandi og tók Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, við verðlaununum.
 
Verðlaunin eru veitt fyrir góðan árangur í flugvallarrekstri og er litið til þátta eins og þjónustu við farþega, uppbyggingu á mannvirkjum, umgjörð verslunar- og veitingasvæða, öryggisleit, samfélags- og umhverfismál, rekstur flugbrauta, flugumferðarstjórn og fjölda áfangastaða sem í boði eru. Dómnefndin tilgreindi sérstaklega að vel væri staðið að rekstri flugvallarins á sama tíma og gríðarleg aukning hefur orðið á farþegum um flugvöllinn. Í dómnefndinni voru aðilar frá Eurocontrol, Ferðamálaráði Evrópu (Europeam Travel Commission), European Civil Aviation Conference (ECACA) auk fulltrúa frá flugvöllum víðs vegar um Evrópu.
 
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, þakkar starfsfólki árangurinn. „Á sama tíma og aukning farþega um flugvöllinn er yfir 30 prósent á ári þá er starfsfólk okkar að koma okkur í fremstu röð í samkeppni við aðra flugvelli. Álagið á vellinum er gríðarlegt út af þeirri aukningu sem hér hefur orðið og því afar ánægjulegt að hægt sé að viðhalda háu þjónustustigi á sama tíma. Fyrir Isavia er mikilvægt að flugvöllurinn sé í fremstu röð og dómnefndin hrósar okkur fyrir fjölmarga þætti í rekstri hans,“ segir Björn Óli.
 
Á síðustu árum hefur Keflavíkurflugvöllur hlotið fjölda viðurkenninga frá Alþjóðasamtökum flugvalla. Hann var valinn besti flugvöllur í Evrópu í þjónustu við farþega árin 2009 og 2014 og með bestu þjónustu í Evrópu í flokki flugvalla með undir 2 milljónir farþega árið 2011. Auk þess var flugvöllurinn valinn á heiðurslista Alþjóðasamtaka flugvalla í Evrópu árið 2014. Í tilkynningu frá Isavia segir að verðlaunin nú séu enn ein staðfesting á því frábæra starfi sem unnið hafi verið á flugvellinum á síðustu árum, bæði af hendi starfsmanna Isavia sem og annarra rekstraraðila á flugvellinum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fulltrúar þeirra flugvalla sem fengu verðlaun í sínum stærðarflokki við verðlaunaafhendinguna á dögunum ásamt fulltrúum dómnefndar.