Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Keflavík í beinni á Players
Fimmtudagur 11. ágúst 2005 kl. 16:57

Keflavík í beinni á Players

Stuðningsmannahópur Keflavíkurliðsins í knattspyrnu hvetur alla stuðningsmenn liðsins til þess að koma saman á veitingastaðnum Players í Kópavogi í kvöld til þess að fylgjast með leik liðsins á móti þýska úrvalsdeildarliðinu Mainz. Útsending hefst klukkan 18:15 í kvöld en leikurinn sjálfur hefst klukkan 18:30 að íslenskum tíma.

Keflvíkingar eru vígreifir fyrir leikinn gegn Mainz en um er að ræða fyrri leik liðanna í undankeppni UEFA-bikarsins.

„Strákarnir eru vel stemmdir fyrir leikinn,“ sagði Ásmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur þegar Víkurfréttir heyrðu í honum fyrr í dag. „Þeir æfðu í hádeginu og hlakka til leiksins. Aðstæður eru með því besta sem gerist. Á leikvanginum eru sæti fyrir 49.000 manns og er búist við því að um 20.000 manns mæti í kvöld. Þegar er búið að selja 19.000 miða. Svo er alveg bongóblíða sem skemmir ekki fyrir.“

Ásmundur sagði að Keflavíkingar myndu halda sig við sitt leikskipulag og spila varlega, sérstaklega í byrjun leiks. „Við komum samt ekki hingað til að pakka í vörn.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024