Kátína á kútmagakvöldi í Garði
Kútmaga og sjávarréttakvöld Unglingaráðs Víðis í Garði var haldið um síðustu helgi fyrir fullu húsi. Veislustjóri var Árni Árnason, stjórnmálafræðinemi og ræðumaður kvöldsins Ísólfur Gylfi Pálmason alþingismaður.Mörg mjög góð skemmtiatrið voru önnur og má þar nefna nemendur úr Gerðaskóla, Bylgju Dís Gunnarsdóttur, Döggu og Rut að ógleymdu happdrætti að hætti Sigurjóns Kristinssonar.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar lék svo fyrir dansi fram undir morgun. Það var unglingaráð Víðis sem stóð fyrir kútmagakvöldinu og rennur afrakstur af því til uppbyggingar unglingastarfs Víðis.
Fleiri myndir frá kvöldinu í Víkurfréttum á fimmtudaginn.