Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Karlmaður féll fjóra metra úr stiga
Fimmtudagur 21. maí 2015 kl. 14:48

Karlmaður féll fjóra metra úr stiga

- og kona slasaðist í leikfimi.

Nokkuð hefur verið um slys í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Til dæmis féll hálfsjötugur karlmaður fjóra metra úr stiga, þegar listi á húsinu, sem hann studdi sig við, brotnaði. Maðurinn lenti á stétt og fann til eymsla í baki. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þá meiddist kona á öxl þegar hún var í leikfimi með fleiri konum. Talið var að hún hefði farið úr axlarlið og var einnig flutt á HSS með sjúkrabifreið.

 
Public deli
Public deli