Kannabisplöntur gerðar upptækar í Keflavík
Við húsleit í Keflavík á föstudagskvöldið fundust 16 kannabisplöntur og lítilræði af öðrum kannabisefnum. Starfsmenn embætta Sýslumannsins í Keflavík og Sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli framkvæmdu húsleitina. Enginn var handtekinn í tengslum við málið en það er í rannsókn.
VF-ljósmynd: Kannabisplöntur sem Lögreglan í Hafnarfirði gerði upptækar í síðustu viku.
VF-ljósmynd: Kannabisplöntur sem Lögreglan í Hafnarfirði gerði upptækar í síðustu viku.