Bygg
Bygg

Fréttir

Kannabislauf í umferðarljósi
Mánudagur 8. júní 2009 kl. 21:21

Kannabislauf í umferðarljósi

Vegfarendur á gatnamótum Vesturgötu og Hringbrautar í Reykjanesbæ hafa eflaust tekið eftir því að þegar grænt ljós var á umferð upp Vesturgötu þá birtist mynd af grænu kannabislaufi í stað hins hefðbundna græna ljóss.

Svokölluðum maska með kannabislaufinu var komið fyrir í umferðarljósinu í skjóli nætur en var þarna í nokkra daga og var farið nú í kvöld. Það var vegfarandi sem sendi okkur meðfylgjandi símamynd af umferðarljósinu sem tekin var fyrr í dag.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kannabislaufi bregður fyrir í umferðarljósum á Íslandi því sömu lauf mátti sjá í umferðarljósum á Akureyri fyrir einhverjum misserum síðan. Akureyringar eru í dag með rauð hjörtu þegar rauða ljósið logar og því datt einhverjum norðanmanni í hug að setja kannabislaufið í græna ljósið. Hvort laufið á horni Vesturgötu og Hringbrautar er ættað að norðan er ekki vitað á þessari stundu.

Mynd: Grænt kannabislauf birtist þegar græna ljósið kom...


Bílakjarninn
Bílakjarninn